Ekki deyja úr þreytu!
Rannsóknir gefa til kynna að mun algengara er að slys og umferðaróhöpp verði vegna syfju heldur en flesta grunar. Á þessari síðu er vakin athygli á á leiðum sem fólk hefur til að draga úr líkum á því að það sofni. Ef svefn sækir að fólki þá er besta ráðið að leggja sig í 15 mínútur.
Það getur skipt sköpum.
Slys og syfja:
- Í framanákeyrslum má rekja orsök til syfju í 13% tilvika
- Syfja veldur útafakstri í 12% tilvika
- Á árunum 1998-2006 létust 16 manns í 10 umferðarslysum þar sem ökumenn sofnuðu undir stýri.
