Góð ráð

Ráðleggingar um syfju og akstur

Það er notalegt að sofa og stundum er svo freistandi að loka augunum að fólk getur engan veginn haldið þeim opnum. Oftast er það alveg hættulaust að fá sér lúr, en í mörgum tilfellum megum við alls ekki sofna, þar á meðal þegar við erum að keyra bíl. Hérna eru ýmsar upplýsingar um svefn og akstur.

15 mínútur geta gert kraftaverk
15 mínútna svefn er að mati sérfræðinga nægur til að jafna sig af syfju. Stöðvir þú bílinn á öruggum stað og sofnir í 15 mínútur þegar þú finnur að þig syfjar verður þú betur fær um að aka áfram í góða stund. Þessar 15 mínútur geta þannig skipt sköpum. Auðvitað er í góðu lagi að sofa lengur, en eftir klukkutíma svefn þarf að hafa í huga að fólk er lengur að vakna.
Margir hafa gífurlega mikla trú á hæfni sinni til að halda sér vakandi. Viljastyrkurinn einn nægir ekki til að halda sér vakandi. Sé fólk nógu syfjað kemur að því þreytan nái yfirhöndinni. Það versta er að við vitum aldrei hvenær það gerist. Þess vegna er best að stoppa og sofna í 15 mínútur.

Hættan á sofna undir stýri eykst síðdegis
Líkamsklukkan gerir það að verkum að við verðum eðlilega þreytt að næturlagi og síðdegis. Mest hætta er á að menn sofni á nóttunni. Hinsvegar verða flest slysa þar sem syfja kemur við sögu að degi til, þegar umferðin er mest og þannig verða afleiðingar þess að sofna alvarlegar. Síðdegis er fólk oft á heimleið eftir langan vinnudag, er þreytt og oft með hugann við eitthvað annað en umferðina. Streita og skortur á athygli samhliða þreytu eykur hættu á að við lendum í slysi.

Geispi og flöktandi augu benda til þreytu
Margir hafa lent í því að sofna, þrátt fyrir að þeir hafi ekki orðið þess varir að þeir væru syfjaðir. Það að fólk geispar er augljóst merki og sömuleiðis benda flöktandi augu til syfju.
Önnur merki geta verið:
Þú missir einbeitinguna og ert ekki viss um hvar þú ert staddur.
Þú ekur á ójöfnum hraða og hefur litla stjórn á bílnum.
Þú verður órólegur /óróleg og strýkur á þér andlitið.

Á þeim tímum sólarhringsins þar sem fólk verður hvað þreyttast þá finnur það fyrir kulda. Það er til vitnis um þreytu.

Ráð sem virka ekki:
Syfjaðir bílstjórar beita ýmsum ráðum til að halda sér vakandi. Sumir stinga höfinu út um hliðarrúðuna meðan þeir keyra. Aðrir auka hraðann og hækka tónlistina eða syngja sjálfir upphátt. Margir halda að það að borða mikið sælgæti og drekka gos og kaffi hafi góð áhrif. Gallinn við öll þessi ráð er sá að þau hafa bæði lítil áhrif og til mjög skamms tíma.
Sé fólk þreytt er svefn eina ráðið. Þannig er reglan: Sértu syfjuð/syfjaður undir stýri skalt stoppa á öruggum stað og sofna í 15 mínútur.

Hvernig komumst við hjá þreytu?
Að stoppa og sofna er besta ráðið verði maður syfjaður undir stýri. En það er jafnframt hægt að gera ýmislegt fleira að komast hjá syfju.
Sofðu nóg eða að lágmarki 7 til 8 klukkustundir á nóttu. Hafir þú ekki fengið nægan svefn í svolítinn tíma er ekki nóg að fá lágmarkssvefn til að jafna sig.
Taktu reglulega aksturshlé á lengri leiðum.
Drekktu eitthvað á klukkutíma fresti. Vökvajafnvægið í líkamanum skiptir miklu máli fyrir athyglina.

Það er bannað að keyra þegar við erum þreytt
Vissir þú að það er bannað að keyra bíl þegar fólk er þreytt.
Ökumaður skal vera líkamlega og andlega fær um að stjórna ökutæki því, sem hann fer með. Enginn má stjórna eða reyna að stjórna ökutæki, ef hann vegna veikinda, hrörnunar, ofreynslu,svefnleysis, neyslu áfengis eða annarra örvandi eða deyfandi efna eða annarra orsaka er þannig á sig kominn, að hann er ekki fær um að stjórna ökutækinu örugglega. (44. grein umferðarlaga nr. 50 frá 1987.) Mikilvægt er að leita upplýsinga um hvort hvort lyf sem fólk tekur geti valdið syfju og skert aksturshæfni.

Mörg slys verða vegna þess að menn sofna undir stýri
Rannsóknir sýna fram á að 44% ökumanna í Noregi hafa einhverntíma sofnað undir stýri. Flestir vakna, góðu heilli áður en það er um seinan og sleppa með skrekkinn. En fjömörg dæmi eru um banaslys í umferðinni sem rekja má til þess að bílstjórar hafi sofnað undir stýri.